Skólaþróunardagur 2010

mynd sare dag 10.jpg

Skólaþróunardagur SARE

Þá er komið að því! Þann 26. febrúar n.k. verður þriðji skólaþróunardagur SARE. Hann verður í leikskólanum Stekkjarási, Ásbraut 4, Hafnarfirði.

Skólaþróunardagurinn byggir á því að starfsfólk leikskóla sem starfar í anda Reggio Emilia, fræðir hvert annað í máli og myndum, um það sem er að gerast í leikskólastarfinu.  Að þessu sinni er deginum skipt fernt, í hverjum hluti eru 8 málstofur. Flestar málstofurnar eru tvíteknar, þ.e. flestar málstofurnar eru bæði fyrir og eftir hádegi. Þetta er gert til að gera leikskólum sem ekki eru með skipulagsdag, kleift að leyfa starfsfólki að taka þátt. Þannig geta fleiri notið þess sem er í boði.

Verð fyrir heilan dag er 2,000 kr., miðað er við að viðkomandi skrái sig í 3 til 4 málstofur. Verð fyrir hálfan dag 1,500 kr., miðað er við að viðkomandi skrái sig í 1 - 2 málstofur. Hádegismatur er ekki innifalinn, súpa og brauð verður selt fyrir 600 kr.

Skráning fer eingöngu fram á netinu, athugið að þegar málstofa fyllist er lokað fyrir skráningu í hana, þetta er vegna rýmis í stofu, eða að ósk málstofustjóra. Að gefnu tilefni eru þátttakendur beðnir um að virða fjöldatakmarkanir og mæta aðeins í þær málstofur sem þeir eru skráðir í.

Af tillitsemi og virðingu við málstofustjóra er fólk beðið um að vera stundvíst og muna að sumir eru að þreyta frumraun sína í að halda fyrirlestur eða vera með málstofu.

Opnað verður fyrir skráningar á www.sare.is kl.: 09:00 þriðjudaginn 3.febrúar 2009 - fyrstir koma fyrstir fá.

Markmið dagsins er að læra af hvert öðru, að njóta þess að vera saman og deila með sér hugmyndum og skoðunum.

 


Keyri á Vefstjórinn Live