SARE dagur

Dagskrá SARE dagsins

25. febrúar 2011

IMG_0172.JPG 

Mæting og skráning frá 8.45 -9.15

Fyrirlestur/smiðja 9.15 – 10.15

Kaffi/samræða – 10.15 – 10.40

Fyrirlestur/smiðja 10.40- 11.40

Matur 11.40 -13.00 

Þeir sem vilja geta keypt súpu, brauð og hummus af Aðalþingi, kr 600

Fyrirlestur/smiðja  13.00 -14.00

Formlegri dagskrá lokið kl. 14.00

Þeir leikskólar sem eru með skipulagsdag geta fengið rými eftir kl 14.00 til 16.30 til að vinna áfram ef áhugi er fyrir hendi.

Verð

Heill dagur 2500 kr. fyrirlesarar borga ekki

Hálfur dagur 2000 kr.

Athugið með endurgreiðslu úr starfsmenntunarsjóðum.

_____________________________

 

Fyrir hádegi

Hluti 1 frá 9:15 -10:15

A.1

Reggio fyrir grænjaxla

 

Helga Hreiðarsdóttir

Sigurlaug Þóra Kristjánsdóttir, leikskólakennarar og deildarstjórar í Aðalþingi

 

Á fyrirlestrinum verður farið yfir það sem einkennir hugmyndafræði Reggio Emilia. Þeir sem nýlega hafa hafið störf á leikskóla sem starfar í anda Reggio Emilia eru hvattir til þess að mæta og fræðast um þessa heillandi hugmyndafræði. Í fyrirlestrinum er stuðst við myndir og skráningar frá Reggio Emilia.

 

A .2

Ferilmöppur

Sigríður Björk Sigurðardóttir, deildastjóri á næst elstu deildinni á Austurborg. Vann sem leikskólakennari í Svíþjóð í 3 ár, 2 ár á Reggio leikskóla. Vann mikið með ljósmyndaskráningu og ferilmöppur þar. Fór líka á nokkra fyrirlestra um skráningar og hvernig er best að vinna þær.

 

Hvað eru ferilmöppur og hvernig getum við nýtt þær í starfi? Hvaða þýðingu hafa ferilmöppur fyrir börn, starfsmenn og foreldra leikskólans? Myndrænar skráningar.Farið verður í hvað sé mikilvægt að hafa í huga, hvernig hægt sé að setja þær upp og tengt við Aðalnámskrá leikskóla?

 

A.3

Leikur og list í umhverfinu.

Útinám í skóginum

Fer fram á útinámsvæði Aðalþings í Magnúsarlundi.

Stendur yfir í frá

9.15 -11.30

Anna Sofia Wahlström, deildarstjóri á Holti. Útskrifaðist með B.Ed 2002. Er í framhaldsnámi í list og verkmenntun, menntavísindasvið, HÍ. Er verkefnastjóri þróunarverkefnis "uppbygging útikennslusvæðis í Innri Njarðvík". Ingibjörg Guðmundsdóttir, myndlistakennari á Holti, útskrifaðist með B.Ed frá KHÍ 1999. Er í mastersnámi í mannauðstjórnin við HÍ.

 

Markmið námskeiðsins er m.a. skapandi starf í útiveru þar sem verður lögð áhersla á að ýta undir skynjun og næmni fyrir umhverfinu. Í verkefnum verður unnið með náttúrlegan efnivið í gegnum leik og myndsköpun. Unnið verður með þætti eins og form, liti, andstæður, hljóð, samvinnu og túlkun. Nauðsynlegt er að vera klæddur eftir veðri og gott að hafa myndavél meðferðis.

 

A.4

Reggio með yngstu börnunum

Irpa Sjöfn Gestsdóttir Sigrún Ósk Gunnarsdóttir, þær eru deildarstjórar á Bakka deild  yngstu barnanna í  Marbakka

Hvernig við nálgumst Reggio hugmundafræðina í vinnu með yngstu börnum leikskólans

A.5

Turnabyggingar og landslag

Athugið að ekki er hægt að skrá sig í bæði hluta 1 og 2

Ástríður Stefánsdóttir, arkitekt,  MA hagnýtri menningarmiðlun, Háskóli Íslands, Sagnfræði og heimspekideild

Hildur Steinþórsdóttir, arkitekt, Dip. Ed. Listaháskóli Íslands. Reka fyrirtækið Skyggni frábært í Hugmyndahúsi háskólanna. Þær hafa líka reynslu af því að vinna með börn um í Myndlistaskóla Reykjavíkur.

A. Landslag, Litablöndun, túlkun og  miðlun á landslagi. Listaverkabækur skoðaðar og landslag málað á grunna sem notaðir verða sem undirlag fyrir turnana.

B. Turnar. Líkanagerð af turnum. Innlegg um mismunandi gerðir turna; léttir og þungir. Turnar verða útfærðir og byggðir úr endurnýttu efni.

A.6

Byggingasmiðja

Svavar Helgi Ólafsson, leiðbeinandi á Hrafnaþingi, elstu deildinni á Aðalþingi og Kristín Dýrfjörð

Á Aðalþingi hefur átt sér stað ákveðin þróun í vinnu með kúlurennibrautir. Í Aðalþingi eru ekki til einingakubbar, en þar er gríðarleg áhersla á byggingastöðvar og byggingarefni af ýmsum gerðum.  Í Smiðjunni verða sýnd myndbönd um þróunina og leikið sér með efniviðinn. 

A.7

Valdefling

Leikskólastjóri Aðalþings, doktorsnemi við HÍ.

Skoðar starf í leikskólum í ljósi hugtakana valdaafsal, valdefling, og valdstýring. Hvernig sjá má birtingamyndir þessara hugtaka í starfi í leikskólum og hvernig leikskólastarf mótast af þeim. Hún skoðar hugtökin m.a. í ljósi rannsóknar sinnar um áhrif viðhorfa leikskólakennara um leikskólastarf.

 

Kaffi og samræður

10:15 -10:35

Hluti 2

10:40 -11:40

 

B.1

Þjóðfunda-aðferð fyrir stjórnendur

Kristín Dýrfjörð, SARE,

Smiðja þar sem farið verður í og settur upp lítill þjóðfundur um  námskrágerð og mat.  Nýleið til að ræða saman um leikskólastarf.  Í aðalnámskrá og lögum um leikskóla er sérstaklega rætt um að tryggja aðkomu allra að námskrágerð og mati á starfi leikskólans. Þjóðfundaraðferðin er tilvalin til að setja niður línur og ákveða viðmið. Í smiðjunni verður farið í gegn um aðferðina, að búa til handrit að fundi, ákveða spurningar og framgang

 

B .2

Tónlist í leikskólum

Jenný Gunnarsdóttir, deildarstjóri á Aðalþingi og tónlistarkona meistaranemi. Jenný hefur áralanga reynslu af því að vinna að tónlist með börnum í leikskólum

Farið verður í grunnatriði í tónlistarstarfs með leikskólabörnum . 

B.3

Rennibrautir

Athugið að ekki er hægt að skrá sig í bæði hluta 1 og 2

Ástríður Stefánsdóttir, arkitekt,  MA hagnýtri menningarmiðlun, Háskóli Íslands, Sagnfræði og heimspekideild

Hildur Steinþórsdóttir, arkitekt, Dip. Ed. Listaháskóli Íslands. Reka fyrirtækið Skyggni frábært í Hugmyndahúsi háskólanna. Þær hafa líka reynslu af því að vinna með börn um í Myndlistaskóla Reykjavíkur.

A. Rennibrautir. Turnarnir verða notaðir sem undirstöður fyrir rennibrautir sem byggðar verða úr pappír. Aðferðir verða kenndar við að forma og móta brautirnar svo úr verða ævintýralegar leiðir.

B. Hreyfing kúlunnar .  Ferð kúlunnar verður máluð með vatnslitum - ofan frá og á hlið. Rennibrautin og turnarnir teiknaðir í kringum hreyfingalínuna.

C. Turnaborg. Rennibrautirnar settar saman í turnaborg og rennibrautirnar prófaðar. Fjallað um samfélag..

B.4

Barn vikunnar

 

Þórhildur Jónsdóttir, Leikskólakennari / Deildarstjóri. (Hugsanlega mun Gróa Þórdís Þórðardóttir leikskólakennari / deildarstjóri, vera með innlegg um hvernig eldri deildir leikskólans hafa útfært verkefnið fyrir eldri börnin)

 

Verkefni á Sólskinsbæ – 1-3ja ára deild í leikskólanum Hulduheimum Markmið með verkefninu “Barn vikunnar” "Velferð í leikskólastarfi" M.ö.o ...að barnið fái notið sín í leikskólanum sem einstaklingur ...að efla samstarf heimilis og skóla Barn vikunnar fær ýmis hlutverk í eina viku. Skráningar og skemmtilegheit. Í fyrirlestrinum verður sagt frá hvað barnið gerir þessa viku.

B.5

Að vinna með jarðleir

Rannveig Tryggvadóttir, leirlistakona ,Kópavog

Rannveig er á meðal þekkari leirlistamanna hérlendis, hún rekur verkstæði og gallerí í Kópavogi.

Unnið verður með undirstöðuatrið i við jarðleir, vinnubrögð kynnt.  M.a. að nota leirinn aftur.

B.6

Leiðarljós

 

Íris María Bjarkardóttir,

Leikskólakennaranemi við Háskóla Íslands. Hefur starfað sem leiðbeinandi í Aðalþingi a annað ár. Fór á hálfsmánaðar námskeið í Reggio Emilia sumar 2010.

 

Vinnan á Vísindaþingi með yngstu börnunum á leikskólanum Aðalþingi. Hvernig við vinnum með ljós, skugga, liti og fleira á Vísindaþingi.

 

B.7

Legó

Roberto Pisano, B.S í stærðfræði og Meistaranemi við HÍ

Smiðja að nota Legó á skapandi hátt -  Í Aðalþingi hefur verið að þróast vinna með legókubba. Þar sem kubbarnir eru nýttir sem leikefni, sem efni í stærðfræði, sem hluti af eðlisfræði, allt á skapandi hátt.

B.8

Ég á lítinn skrýtinn skugga

Anna Katrín Pétursdóttir,  Leikskólastjóri, verkefnastjóri sérkennslu í Aðalþingi og meistaranemi.

Að skyggja börn, nota uppeldisfræðilegar skráningar og vettvangsnótur sem hjálpartæki í sérkennslu.

 

 

Matur  11:40 - 13

Hluti 3 13:00 14:00


C.1

Að vinna með jarðleir

Rannveig Tryggvadóttir, leirlistakona ,Kópavogi

Rannveig er á meðal þekkari leirlistamanna hérlendis, hún rekur verkstæði og gallerí í Kópavogi.

Unnið verður með undirstöðuatrið i við jarðleir, vinnubrögð kynnt.  M.a. að nota leirinn aftur.

C .2

Að vinna í ljósaveri

Kristín Dýrfjörð SARE

Verður í ljósveri Aðalþings. Farið verður í mismunandi ljósgjafa og verkefni tengd ljósum. Myndvarpar, ljósaborð, blacklight, skuggaleikhús, slidesljós, kastarar. 

C.3

Reggio fyrir grænjaxla

 

Á fyrirlestrinum verður farið yfir það sem einkennir hugmyndafræði Reggio Emilia. Þeir sem nýlega hafa hafið störf á leikskóla sem starfar í anda Reggio Emilia eru hvattir til þess að mæta og fræðast um þessa heillandi hugmyndafræði. Í fyrirlestrinum er stuðst við myndir og skráningar frá Reggio Emilia.

 

C.4

Starfið í Aðalþingi

Leikskólakennarar í  Aðalþingi

Fjallað um starfið í Aðalþingi í máli og myndum og tengt við hugmyndafræði Reggio Emilia

C.5

Skráning fyrir lengra komna

Guðrún Alda Harðardóttir

Skráningar skoðaðar og ígrundaðar saman. Valið úr skráningum sem viðkomandi koma með eða sem lagðar verða til úr Aðalþingi.

 

Skráning erinda- smiðja á SARE daginn 25. febrúar 2011

Athugið að fylla úr fyrir hvert erindi smiðju sem leikskólinn/viðkomandi ætlar að vera með.

Nafn leikskóla *
Nafn/nöfn þeirra sem sjá um fyrilestur
Nafn fyrirlesturs/smiðju *
Stutt lýsing á því sem ætlunin er að gera/fjalla um *
Starfsheiti og /eða kynning á þeim sem sjá um smiðju
Ertu með smiðju eða fyrirlestur *
Þörf fyrir efni tæki
tölvupóstfang *
 

Keyri á Vefstjórinn Live