SARE skólar

Í SARE eru 27 leikskólar af öllu landinu. SARE stendur árlega fyrír skólaþróunardegi þar sem leikskólarnir kynna hluta starfsemi sinnar hver fyrir öðrum. Á síðasta skólaþróunardegi í janúar 2009 voru um 200 þátttakendur frá 18 leikskólum. Boðið var upp á 21 fyrirlestur/málstofur yfir daginn í þremur lotum, sjö í hverri lotu. Er þetta fjölgun um fimm skóla og sjö málstofur frá því árið áður. Hér til hliðar má finna tengla á heimasíður skóla sem eru í SARE og neðar á síðunni er stutt umfjöllun um leikskóla í SARE.

Umfjöllun er komin um: Holt, Bjarma, Stekkjarás, Aðalþing, Sæborg, Sólborg, Grandaborg, Brimver, Skerjagarð,

Holt 4vef.jpgHolt 1vef.jpgHolt 3vef.jpg

Holt, Reykjanesbæ

Í leikskólanum Holti er unnið út frá fjórum einkunnarorðum það er gleði, virðing, sköpun og þekkingarleit. Á Holti er lögð áhersla á tónlist og myndlist og starfað í anda ,,Reggio Emilia“.  Grunnurinn að starfinu er virðing fyrri barninu og hugmyndum þess.  Könnunaraðferðin í sinni fjölbreyttustu mynd er nýtt til þekkingarleitar.  Lögð er áhersla á að nýta frjálsan leik markvisst sem uppeldistæki.  Umhverfi leikskólans er afar skemmtilegt býður upp á áhugaverða möguleika hvað varðar útivist og vettvangsferðir jafnt sumar sem vetur.  Leikgleði barnanna og áhugi þeirra fyrir líðandi stundu er í fyrirrúmi. 

bjarmi3.pngbjarmi8.pngbjarmi5.png

Bjarmi, Hafnarfirði

Á Bjarma er litið á samvinnu og samræður sem mikilvægan þátt í öllu starfi. Við vinnum markvisst að því að byggja upp samfélag þar sem virðing og umhyggja er höfð að leiðarljósi. Einnig er lögð áhersla á hvetjandi námsumhverfi sem vekur upp löngun til náms og þekkingarleitar hjá öllum sem að skólasamfélaginu koma.  Til að mæta þörfum barnanna vinnum við með fljótandi dagskipulag og námskrá. Námskráin mótast af því samfélagi sem er í skólanum hverju sinni þ.e. nemenda-, foreldra- og starfsmannahópi. Með breyttum hópi koma breyttar áherslur. Því tekur námskráin sífelldum breytingum og verður að vera í stöðugri endurskoðun og mati.

Stekkjaras.jpgStekkjaras1.pngStekkjarss 3.png

Stekkjarás, Hafnarfirði

Stekkjarás er einn stærsti leikskóli landsins. Einkunnarorð Stekkjarás eru ,,Hugmyndir barnsins, verkefni dagsins”. Einkenni Stekkjaráss eru: Stöðvavinna, Remida (skapandi efnisveita), frjáls leikur, aldursblöndun, ungbarnadeildir og flæðandi dagsskipulag.

SARE adalthing.jpgadalthing6.JPGAdalthing1.jpg

Aðalþing, Kópavogi

Í leikskólanum við Aðalþing er boðið upp á fjölbreytta menntunarmöguleika svo öll börnin geti fundið eitthvað við sitt hæfi, lögð er áhersla á að örva alla tjáningarmáta einstaklingsins. Hlutverk leikskólakennara í leikskólanum er að vera hluti af námshóp fullorðinna og barna, þeir eru frekar hlustendur en fræðarar. Hlutverk þeirra er meðal annars að skilja börn sem gerendur, ekki neytendur.  Í samskiptum kennara og barns er einblínt á verkið sjálft, hugmyndir þeirra mætast og byggjast á áhuga beggja. Þannig snúast samskiptin um að takast á við verkefni.

saeb3 Medium.JPGsaeb4Medium.JPGsaeb2 Medium.JPG

Sæborg, Reykjavík

Einkunnarorð Sæborgar eru tjáning, sköpun og umhverfi. Unnið er út frá þema í lengri eða skemmri tíma þar sem áherslan er á virkni barnsins. Umhverfi og verkefnavinna stuðla að uppgötvun barnsins og þekkingarleit. Öll upplifun er tjáð og túlkuð á skapandi hátt í fjölbreyttan efnivið. Hverju þemaverkefni lýkur með ferilmöppu sem hefur að geyma skráningar af ferli barns, teikningar og verkefni þess.

solborg5.JPGsolborg2.JPGsolborg1.JPG 

Sólborg, Ísafirði

Á Sólborg er skólaárinu skipt upp í tvö tímabil, vetrarstarfi sem byrjar  1 október til 30 apríl og sumarstarfi sem byrjar 1 maí til 30 september. Börnunum er skipt upp í  hópa og er unnið út frá ákveðnu þema yfir veturinn sem endar með sýningu í byrjun maí. Sumarstafið byggir á meiri útinámi og  ferðum um umhverfið okkar. Við erum með  náttúruna allt í kringum okkur þ.e. fjöllin, skóginn, lystigarð, fjöruna og mannlífið. Þessar gersemar nýtum við okkur vel í öllu okkar starfi með gleði, virðingu og sköpun sem okkar leiðarljós.

Myndir Grandaborg jn 09 012.jpgMyndir Grandaborg jn 09 013.jpgMyndir Grandaborg jn 09 005.jpg

Grandaborg, Reykjavík

Rauði þráðurinn í starfsemi leikskólans er annars vegar "Ég og umhverfið mitt", og hins vegar, "Ég og vináttan". Undanfarin ár hefur stefna Grandaborgar verið "Mannauðarstefna" sem grundvallast af að hver einstaklingur er einstakur og á að njóta virðingar eins og hann er.

brimborg5.jpgBrimborg6.jpgbrimborg4.jpg

Brimver, Árborg

Leiðarljós Brimvers er virðing fyrir barninu, þekkingarleit, gleði og sköpun. Uppeldislegar áherslur byggjast á hugmyndafræði Loris Malaguzz m.a um að börnin læri í samskiptum við hvert annað og hinn fullorðna með því að skiptast á skoðunum og ræða málin. Lögð er áhersla á að nýta frjálsa leikinn markvisst í uppeldisstarfi með börnunum. Einnig er lögð áhersla á útiveru þar sem áhugaverðir staðir á Eyrarbakka eru heimsóttir jafnt sumar sem vetur. Í Brimveri er aðaláherslan á að skapa gott félagslegt andrúmsloft þar sem börn og starfsmenn fá notið sín og þroskað sína góðu eiginleika fordómalaust. Meðal þess sem hefur verið þróað í Brimveri er gerð einstaklingsnámskráa fyrir öll börn ásamt myndrænni skráningu á starfinu og skapandi efnisveitu.

skerjagardur2.jpgskerjagardur3.jpgSkerjagarur1.jpg

Skerjagarður, Reykjavík

Í Skerjagarði er lögð áhersla á að einstaklingurinn njóti sín í notalegu og öruggu umhverfi. Þar sem ríkir á gleði og jákvætt andrúmsloft. Þemastarfi er skipt upp í nokkur mislöng  tímabil. Viðfangsefni hvers þema fer eftir áhugasviði barnanna hverju sinni. Hverju þema er lokið með ferilmöppu sem geymir skráningu úr ferlinu og foreldrum er boðið í kaffi á deild. Nánasta umhverfi leikskólans er mikið nýtt í vettvangsferðir í tengslum við þemu. Má þar nefna svæði eins og fjöruna, Nauthólsvík, skógarróló og fleiri skemmtileg svæði í nágrenninu. Einkunnarorð skólans er gleði-frumkvæði-sköpun.

 Hlíðaberg, Hafnarfirði

Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun, vellíðan. Með listasmiðju á hverri deild og myndlistarkennara sem fer á milli deilda er skapandi starfi gert hátt undir höfði. Könnunarleikur er notaður í hópastarfi með yngstu börnunum og könnunaraðferð með þeim eldri. Lögð er áhersla á opin leikefnivið og örvandi námsumhverfi. Kennarar og börn leita saman svara við spurningum sem vakna í leik og starfi.

sarealfa 20.ma09 308alfa.jpgsarealfa20.ma09 330 Small.jpgsarevisindavika 324lfa.jpg

Álfaborg, Bláskógabyggð

Í leikskólanum Álfaborg er litið til starfsaðferða í anda leikskólastarfs sem kennt er við Ítölsku borgina Reggio Emilia. Sjónrænt uppeldi og áhersla á tilfinningar og tjáningu barnanna er stór þáttur í starfinu. Það hvetur til skapandi og virkrar hugsunar og eykur sjálfstæði barnanna. Börnin taka sjálf þátt í að skipuleggja verkefnin sín og starfið í heild. Þau læra að bera ábyrgð og taka afleiðingum. Áhersla er  lögð á samtal barnanna og hlustun kennara. Mikilvægt er að börnin rannsaki og velti fyrir sér hlutunum. Orðin hvað, hvernig og hvers vegna eru mikið notuð til að leiða samtöl og hvetja til virkrar hugsunar. Áhersla er lögð á frjálsan leik, myndsköpun og tónlist sem námstæki. Þar sem við búum í gróskumikilli sveit og með margbrotnu umhverfi nýtum við hana sem innblástur í starf okkar.

 

marbakki3.jpgmarbakki2.JPGmarbakki4.jpg

Marbakki, Kópavogi

Marbakki er við sjávarsíðuna í Kópavoginum. Einkunnarorð okkar eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn. Í leikskólanum vinna yngstu börnin með könnunarleikinn til að nema og uppgötva umhverfið með verðlausum efnivið. Eldri börnin vinna í stöðvavinnu þar sem unnið er í opnum hópum. Síðustu ár hefur starfsfólk unnið að þróunarverkefni sem nefnist „Lýðræði með sjónrænum boðskiptum" þar sem markmiðið er að öll börn leikskólans hafi jafna möguleika á að tjá sig og taka ígrundaðar ákvarðanir í daglegu starfi.

 


Keyri á Vefstjórinn Live