Síðan og undirsíður hennar eru tileinkaðar börnum og vísindum. Hér verður sagt frá verkefnum, hugmyndum og áhugaverðum heimasíðum. Ef SARE félagar eiga efni sem fellur hér undir væri vel þegið að viðkomandi setti sig í samband við Kristínu Dýrfjörð, vefstjóra.
Vísindasmiðja
Hér að neðan má sjá tvö myndbönd frá Kristínu Dýrfjörð, annars vegar myndband frá því að leikskólabörn á Akureyri heimsóttu nemendur í vísindasmiðju við Háskólann á Akureyri vorið 2007. Hitt myndbandið er tengt en það er fyrirlestur sem Kristín flutti á ráðstefnu um sköpunarmátt og frumkvöðlastarf ungs fólks á Grand hótel Reykjavík þann 2. desember 2009. Inn í þeim fyrirlestri sýni hún myndbandið að norðan.

