Tími er nauðsynleg forsenda skólastarfsins. Til að geta myndað samband við annað fólk, samband sem skipti máli þarf að gefa því tíma. Eitt markmið leikskóla er að hann sé staður þar sem fólk (á öllum aldri) á í innhaldsríkum samskiptum og sambandi hvert við annað. Skólar sem hafa það á dagskrá að styrkja samveru, samskipti og að náið samband myndist á milli þeirra sem þar eru, í slíkum skóla er gefinn tími, tími fyrir börn, tími fyrir kennara, tími fyrir verkefni, tími til að vera vinir og tími til að takast á við árekstra sem móta okkur, tími til að vera öðruvísi. (Rinaldi í Dahlberg og Moss, 2007). (Kristín Dýrfjörð tók saman)

