Stöðvarvinna

Um stöðvarvinnu

Nokkrir íslenskir leikskólar sem starfa í anda Reggio Emilia hafa tekið upp stöðvarvinnu sem eitt  vinnuform sitt með börnum. Stöðvarvinna hefur aðallega verið þróuð í skólum sem starfa í anda Reggio Emilia í Svíþjóð. Nokkuð er mismunandi hvaða leiðir leikskólarnir hérlendis velja við útfærslur sínar. Verður forvitnilegt að að fylgjast með þróuninni. Leikskólarnir Marbakki, Aðalþing og Stekkjarás munu gera grein fyrir stöðvavinnu í sínum skólum. Jafnframt er ætlunin að greina betur frá hugmyndafræðinni bak stöðvarvinnunnar.

Stöðvarvinna á Stekkjarási

Stöðvavinna á Stekkjarási felst í því að grípa hugmyndir og áhugasvið barnanna og útfæra á námsstöðvum. Námsstöðvar eru í boði þrisvar í viku og hefst með stöðvafundi. Á stöðvafundi er börnunum kynntar stöðvarnar og hvaða verkefni á að leysa á hverri stöð. Það er ekki skylda fyrir barn að velja sér stöð - heldur getur það valið sér frjálsan leik á tilteknu svæði ef það kýs. Misjafnt er hversu lengi stöðvavinnan stendur og fer það eftir aldri og áhuga barnanna. Stöðvavinna vikunnar er ákveðin á mánudags deildarfundum þar sem farið er yfir skráningar síðastliðinnar viku og nýjar stöðvar - skráningar frá leik barnanna. Ný verkefni sem byggja á áhuga barnanna eru ákveðin í framhaldi af fundinum. (Guðný Anna Þóreyjardóttir tók saman)


Keyri á Vefstjórinn Live