Skapandi efnisveita - ReMida

Um skapandi efnisveitur

Hugmyndafræði ReMídu má rekja til leikskólastarfs í borginni Reggio Emilia á Ítalíu, en þar ákváðu yfirvöld leikskólamála í samvinnu við ýmsar opinberar stofnanir borgarinnar og fyrirtæki, að koma upp húsnæði þar sem skipulega væri safnað efnivið sem gengi af á öðrum stöðum/fyrirtækjum, til nota fyrir börnin í leikskólum borgarinnar með skapandi starf í huga. Nú er efnisveitan opin öllum íbúum borgarinnar.  

Hugmyndafræðin byggir m.a. á að vinna með viðhorf hlutaðeigandi til þeirra takmörkuðu efnislegu gæða sem til eru. Með hliðsjón af mikilli neysluhyggju og hraðri endurnýjun, t.d. vegna tískustrauma, er hægt að tryggja börnum (og öðrum) efnivið sem annars væri haugamatur, nýtt og auðugt líf.

Hugmyndafræði skapandi efnisveitu styður við sjálfbæra þróun og tengist sterkt Staðardagsskrá 21 og þeim ákvæðum sem þar er að finna um þátttöku og virkni barna. Nokkrar grundvallareglur hafa verið settar fram um hverjir geta notað nafnið ReMída

 Þær eru: 

  • Að vera meðlimur í Samstökum áhugafólks um starf í anda Reggio Emilia (SAURE). Sem er í alþjóðlegu samstarfi við Reggio Children á Ítalíu og aðrar ReMídu stöðvar í heiminum.
  •  Lykilpersóna/ umsjónarmanneskja ReMídu þarf að sækja námskeið hjá ítölsku ReMídu efnisveitunni, um  hugmyndafræði, uppsetningu, meðhöndlun og notkun efnis.
  • Skuldbinding um að þróa sig í starfi m.a. í samstarfi við aðrar ReMída-efnisveitur.

Tenglar á ReMídur annarra landa

Danmörk,

Ástralía,

Ítalía  

Noregur.

Myndir frá skapandi efnisveitunni í Hafnarfirði

vorið 2008

skapandi efnisveita og akureyri mai 2008 171.jpgskapandi efnisveita og akureyri mai 2008 156.jpgskapandi efnisveita og akureyri mai 2008 174.jpg

 

 

100_7032.JPGskapandi efnisveita og akureyri mai 2008 204.jpg100_7031.JPG

 Vorið 2008 stóðu leikskólarnir Stekkjarás og Hlíðarberg í Hafnarfirði fyrir skapandi efnisveitu í nokkra mánuði í tilefni 100 ára afmæli Hafnarfjarðar. Mikil fjöldi fólks lagði leið sína þangað.   


Keyri á Vefstjórinn Live