Fljótandi námskrá

Í fljótandi eða vaxandi námskrá (emergent curriculum) setja leikskólakennarar ekki fram ákveðin markmið fyrir hvert verkefni fyrir sig. Í stað þess varpa þeir fram tilgátum um hvað gæti gerst þar sem þeir byggja á þekkingu sinni á börnunum og fyrri verkefnum þeirra. Með tilgátunum skipuleggja þeir starfið með sveigjanleika, aðlaga það að þörfum og áhugasviði barnanna, svo og eigin áhuga og gildum. Í skólastarfi með fljótandi námskrá er námskráin skráð eftir á en ekki fyrirfram líkt og gert er við hefðbundna námskrárgerð.

Námskráin hún er það sem gerist í leikskólastarfinu í heild.  Námshópurinn þ.e. kennarar og börn, móta námskrána í sameiningu og við mótunina styðst hópurinn við áhugasvið hópsins og/eða einstaklinga. Það má því segja að hún verði til í grasrótinni - sé grasrótarnámskrárgerð.

Námskrá sem þessi verður aldrei eins frá ári til árs eða meðal ólíkra námshópa skólans. Uppeldisleg skráning gegnir mikilvægu hlutverki við fljótandi námskrárgerð. Hún er drifkraftur hennar, viðfangsefni eru valin og ákvörðuð út frá fyrri skráningum.

Einstaklingar eiga ekki aðeins samskipti, þeir eiga samskipti um eitthvað. Í leikskólum vill það brenna við að samskipti barna og kennara eru um rútínur, reglur og hegðun barnanna. Dýrmætum námstíma er kastað á glæ í stað þess að nýta hann til að eiga samskipti um verkið sjálft þar sem pælingar barna og fullorðinna mætast til að þroskast og læra. (Guðrún Alda Harðardóttir tók saman)


Keyri á Vefstjórinn Live