Faglegt hlaðborð

Faglegt hlaðborð hefur unnið á víða, Þá eru gjarnan örfyrirlestrar t.d um áhugavert efni eða skráningar og síðan er umræða. Við ákváðum að gefa þessari faglegu nýung sameiginlega nafnið faglegt hlaðborð. Hér á eftir er gerð grein fyrir hvenrig leikskólinn Fagrabrekka í Kópavogi, hagar sínu hlaðborði, undir heitinu fræðilegir föstudagar. Í framtíðinni væri áhugavert að starfsfólk nýtti síðuna til að deila reynslu sinni af faglegu hlaðborði.

Fræðandi föstudagur á Fögrubrekku

Tilgangur „Fræðandi föstudags" er að starfsmenn vinna saman að stuttu fræðsluerindi (10 mínútur) tengdu Reggio Emilia, skráningu, námskeiði, fyrirlestri, hópavinnu eða annarri fræðslu.

Erindið er flutt í kaffitíma starfsmanna fyrir hádegi á föstudögum.

Við lærum mest á því að kenna öðrum !!

Ø     Á föstudögum verður kaffitíminn 30 mínútur

Ø     Starfsmenn munu skiptast á að vera með fræðsluna

Ø     Einn til tveir starfsmenn sjá um fræðsluna í hvert skipti

Ø     Allir munu koma að fræðslunni, það er alls ekki meiningin að deildarstjórar sjái eingöngu um fræðsluna, heldur styðja þeir alla til að taka þátt í fræðslunni, líka matráðar

Ø     Ef eitthvað kemur upp á, til dæmis að starfsmaður sem á ekki fræðandi föstudag, hefur farið á spennandi námskeið þá getur hann beðið um skiptingu

Ø     Ekki skal auglýstur fræðandi föstudagur falla úr

(Edda Valsdóttir tók saman)


Keyri á Vefstjórinn Live