Efnisveita

bori efnisveita.jpg

Efnisveita SARE

Ruslið þitt getur verið tækifærið mitt

Markmið efnisveitu SARE

  • Skapa allrahanda efnivið nýtt líf undir kjörorðunum „þitt rusl, mitt tækifæri".
  • Styðja nýtingu þeirra takmörkuðu auðlindir sem til eru.
  • Hjálpa skólum, samtökum og einstaklingum að nálgast fjölbreytt efni til skapandi starfa.
  • Styðja við sjálfbæra þróun og ábyrgð samfélagsins.

 

Hugmyndafræðin Efnisveitu SARE  byggist m.a. á að vinna með viðhorf til umhverfisins og þeirra takmörkuðu efnislegu gæða sem til eru í anda sjálfbærar þróunar.

Hvað er gert

Skapandi efnisveita felst í að safna tilfallandi ýmsum efnivið frá fyrirtækjum og heimilum. Afgangar , umbúðir, afskurður og margt fleira. Efnið sem annars hefði lent á haugunum. Eina krafan er að efnið sé til þess að gera hreint og að í því séu ekki hættuleg efni. Efnið er flokkað og sumt er unnið, sem dæmi eru reiðhjól tekin í sundur, tré sagað,  hirt innan úr rafmagnstækum. Efnið er þannig unnið sem hráefni til sköpunar fyrir aðra. Í efnisveitunni er efnið flokkað eftir grófleika, gerð, lit og fleira.

Fyrir hverja

Efnisveitan er opin öllum sem vilja nálgast efnivið til skapandi starfa. Öllum skólastigum frá leikskóla til háskóla, starfandi listafólki og öðrum sem vilja nýta sér efniviðinn (frumkvöðlum - þeim sem eru að hanna vörur og þróa viðskiptahugmyndir, eldri borgarar og svo framvegis). Með þessu móti er hugmynd sem upprunnin er í leikskólaheiminum, ljáð vængi.

Hver kemur að og hvar staðsett

Verkefnið er unnið í samstarfi SARE sem leggur til þekkingu og starfsmann og Hugmyndahús Háskólanna sem leggur til húsnæði og aðstöðu fyrir efnisveituna að Grandagarði 2 í Reykjavík og með þróunarstyrk frá Leikskólasviði Reykjavíkurborgar. Ávinningur fyrirtækja að taka þátt í efnisveitunni er m.a. að geta sett fram að það styðji samfélagsverkefni og ýti undir sjálfbæra þróun

Heimasíða SARE er www.sare.is 

Hafa samband

Verkefnisstjóri efnisveitu SARE er Tjörvi Dýrfjörð sími 844 5604.  Ef þið hafið ábendingar um efni er hægt að senda þær á tölvupóstfang  tjorvid103@mail.com

bori efnisveita.jpg

bbbb

Keyri á Vefstjórinn Live