Lög Samtaka áhugafólks um starf í anda
Reggio Emila
SARE
1. grein
Nafn samtakanna/félagsins er Samtök áhugafólks um starf í anda Reggio Emilia. Skammstafað SARE
2. grein
Heimili samtakanna og varnarþing er í Reykjavík.
3. grein
Hlutverk samtakanna er að stuðla að samstarfi, þróun og nýbreytni um starf í anda Reggio Emila, með því að efla samstarf og samskipti þeirra sem áhuga hafa.
4. grein
Markmiðum sínum hyggjast samtökin ná með því að:
- Standa fyrir málþingum, námskeiðum, ráðstefnum og samstarfsdögum um starf í anda Reggio Emilia
- Taka þátt í og hafa frumkvæði að verkefnum þar sem hugmyndafræði Reggio Emilia er lögð til grundvallar.
- Halda úti heimasíðu þar sem félagar geta skipst á upplýsingum og hugmyndum um allt það er varðar markmið félagsins.
- Hvetja til og standa að útgáfu um starf í anda Reggio Emilia eftir því sem efni og aðstæður leyfa.
- Stuðla að samfélagslegri umræðu um starf í anda Reggio Emila.
5. grein.
Félagar geta orðið:
- Allt áhugafólk um starf í anda Reggio Emilia.
- Styrktarfélagar geta verið stofnanir, fyrirtæki og aðrir aðilar sem hafa áhuga á að stuðla að starfi í anda Reggio Emilia.
6. grein
Stofnfélagar eru: Sjá meðfylgjandi stofnfélagaskrá.
7. grein.
Reikningstímabil er milli aðalfunda. Árgjald skal ákveðið á aðalfundi og innheimt sem fast gjald á hvern félaga. Styrktarfélagar greiða sérstakt árgjald en fá þess í stað að kynna starfsemi sína í tengslum við starfsemi félagsins. Gjaldkera er heimilt að semja nánar við einstaka styrktarfélaga um upphæð árgjalds og greiðslumáta.
8. grein.
Á aðalfundi er kosin fimm manna stjórn og tveir varamenn. Formann skal kjósa sérstaklega. Að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum: Varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi. Tenglar Íslands við Reggio Children samtökin á Ítalíu skulu ávallt boðaðir á fundi stjórnar og hafa þar mál- og tillögufrelsi. Daglega umsjón með samtökunum fer stjórn þeirra. Formaður boðar stjórnafundi þegar þurfa þykir eða þegar tveir eða fleiri stjórnarmenn æskja þess.
9. gr.
Á vegum félagsins starfar þriggja manna uppstillinganefnd. Uppstillinganefnd skal leita eftir fólki til starfa fyrir félagið samkvæmt því sem fram kemur í lögum þessum og tryggja að í hvert laust sæti sé a.m.k. einn frambjóðandi.
10. gr.
Aðalfundur er haldinn annað hvert ár í tengslum við málþing/ráðstefnu. Til aðalfundar skal boðað með minnst þriggja vikna fyrirvara og skulu þar kynntar tillögur að lagabreytingum.
11. gr.
Rétt til setu á aðalfundi með málfrelsi, tillögufrelsi og atkvæðisrétti eiga allir félagar samtakana sem eru skuldlausir við félagið. Fulltrúar styrktarfélaga eiga rétt til setu á aðalfundi með mál- og tillögufrelsi.
12. gr.
Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
1. Fundarsetning.
2. Kosning starfsmanna fundarins, fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar fyrir síðustu tvö ár kynnt og rædd.
4. Endurskoðaðir reikningar fyrir síðustu tvö ár kynntir og afgreiddir.
5. Starfsáætlun til tveggja ára og langtíma stefnumörkun.
6. Lagabreytingar kynntar, ræddar og afgreiddar.
7. Tillaga að árgjaldi kynnt, rædd og afgreidd.
8. Ályktanir kynntar, ræddar og afgreiddar.
9. Kosningar:
a) Kosning stjórnar og varamanna samkvæmt 8. grein.
b) Kosning uppstillinganefndar.
c) Kosning tveggja félagslegra endurskoðenda.
10. Önnur mál.
11. Fundarslit.
13. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða. Tillögur um lagabreytingar þurfa að berast stjórn mánuði fyrir aðalfund. Hægt er að slíta samtökunum á aðalfundi ef 2/3 fundarmanna samþykkja það. Ef samtökin eiga eignir við þær aðstæður skulu þær renna til sambærilegra samtaka.
14. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt einróma á stofnfundi í Reykjavík þann 13. september 2007.

