Um SARE

SARE er stytting fyrir Samtök Áhugafólks um starf í Anda Reggio Emilia. Markmið þeirra er að efla umræðu og vitund um skapandi og gagnrýnið skólastarf. Bæði einstaklingar og skólar geta verið félagar í SARE.

SARE_bordi9

Innlendar fréttir

SARE dagur að baki

Vel heppnaður SARE dagur er að baki um 150 þátttakendur mættu í Aðalþing til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá. SARE þakkar öllum þátttakendum, fyrirlesurum og smiðjustjórum fyrir þeirra framlag. Á vef aðalþings www.adalthing.is (heimsóknir) má sjá myndir frá deginum. Myndir verða líka á þessari síðu undir saredagurinn 2011.

DAGSKRÁ

Dagskrá SARE dagsins er tilbúin, og hana má finna hér

SARE dagurinn

25. febrúar 2011

Fram að helgi skrá þeir leikskólar og aðrir þeir sem hafa áhuga á að vera með erindi á SARE deginum framlag sitt hér á heimasíðunni.

Kynning verður sett upp um helgi og opnað fyrir skráningu í næstu viku. (skrifað 9. febrúar 2011)

Skráning hér

SARE dagurinn 25. febrúar 2011

Saredagurinn verður haldinn í fjórða sinn í leikskólanum Aðalþingi í Kópavogi þann 25. febrúar 2011. Skráning hefst um 10. febrúar 2011.

Þeir sem vilja senda inn erindi /smiðjur vinsamlegast sendið á dyr@adalthing.is

Þeir skólar sem ekki hafa fengið send fyrstu drög að dagsrká vinasamlegast hafið samband í dyr@adalthing.is

sarebori 7.JPG

Verkefni SARE

Pedagógista nám

SARE leitaði fyrir rúmu ári eftir samstarfi við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og Reggio Emilia Institutet í Stokkhólmi um samstarf við að skipuleggja og koma á námi fyrir pedagógistur á Íslandi. Sigríður Síta Pétursdóttir og Guðrún Alda Harðardóttir, sem báðar hafa lokið þessu námi í Svíþjóð leiddu samstarfið. Í vor var síðan auglýst eftir áhugasömum þátttakendum. Lágmarksfjöldi þátttakenda var 20. Mikið var um fyrirspurnir og nokkuð var sótt um. En ekki nóg til að fara af stað með metnaðarfullt nám með þátttöku erlendra og innlendra kennara. Meðal þess sem sérstaklega var spurt um var hvort að námið væri metið til háskólaeininga, sem það var ekki. Í Svíþjóð er námið ekki enn komið á það stig en stefnt að því, Þegar það gerist ætlum við að taka upp þráðinn á ný í samstarfi við endurmenntunarstofnun.

Sjálfboðaliðar úr Hinu húsinu

Þriðjudaginn 13. apríl kom hópur sjálfboðaliða úr Hinu húsinu í heimsókn í Efnisveituna í hugmyndahúsinu. Þau smíðuðu þar fuglahús sem verða hluti af uppákomum í tengslum við Barnamenningarhátíð Reykjavíkur. Hér má sjá myndir frá deginu og af efnivið Efnisveitunnar.

Efnisveita SARE

Efnisveita SARE hefur fengið starfsmann til að halda utan um starfið þar. Hann heitir Tjörvi Dýrfjörð og hefur starfað sem smiður, sölumaður, lagerstjóri og fleira hjá fyrirtækjum í byggingar og bílaiðnaði. Hlutverk hans er að koma á samböndum við fyrirtæki sem leggja til efni, hann mun smætta efnið og sjá um að gera það aðgengilegt fyrir leik- og grunnskóla. . Þegar nýtt efni kemur inn mun hann senda tölvupóst til leikskóla. Ætlunin er að hann setji myndir af þeim efnivið sem til er inn á heimasíðuna. Að sjálfsögðu er vel tekið í allt efni sem fólk vill koma á framfæri við efnisveituna. Nánar á eftir að setja niður tíma sem hann er í sjálfri efnisveitunni til að taka á móti skólum. Hinsvegar er hugsunin að alltaf sé hægt að komast að samkomulagi um tíma. Ráðning Tjörva er tímabundinn en það er von okkar að hann munið ná að skapa okkur þau sambönd sem nauðsynleg eru og að sjá til þess að efniviður rati út í skóla og til annarra þeirra sem á þurfa að halda. Að lokum er vert að gera þess a þar sem við erum í samstarfi við Hugmyndahús Háskólanna mun hann líka vera í samstarfi og nýtast þar. 

Skólaþróunardagur SARE

Minnum á mat á skólaþróunardegi SARE

Vel heppnuðum skólaþróunardegi SARE er lokið. Á þriðja hundrað manns mættu til að hlusta og ræða um á annan tug erinda. Skólaþróunardagurinn byggir á því að fólk sé með málstofur og að þar séu aðrir sem hlusta og taka þátt í umræðu. Hlutverk áheyranda er mikilvægt og undirbúningsnefndin og stjórn SARE þakkar öllum fyrir þátttökuna.

Skólaþróunardagurinn byggir á mikilli vinnu í sjálfboðastarfi. Stjórn SARE vill sérstaklega þakka starfsfólki Stekkjaráss fyrir mikið vinnuframlag og undirbúningsnefnd Skólaþróunardagsins, Öldu Agnesi Sveinsdóttur, Hörpu Brynjarsdóttur og Sigríði Sítu Pétursdóttir fyrir þeirra framlag.

Það er ánægjulegt að geta þess að þátturinn Samfélagið í nærmynd, ákvað að vera á staðnum og senda út beint. Þar voru viðtöl við fjölda fyrirlesara og gesta um daginn. Við hvetjum sem flesta til að finna sér tíma og hlusta á þáttinn á vefnum. SAMFÉLAGIÐ Í NÆRMYND

 _________________________________

Þá er komið að því! Þann 26. febrúar n.k. verður þriðji skólaþróunardagur SARE. Hann verður í leikskólanum Stekkjarási, Ásbraut 4, Hafnarfirði.

Skólaþróunardagurinn byggir á því að starfsfólk leikskóla sem starfar í anda Reggio Emilia, fræðir hvert annað í máli og myndum, um það sem er að gerast í leikskólastarfinu.  Að þessu sinni er deginum skipt fernt, í hverjum hluti eru 8 málstofur. Flestar málstofurnar eru tvíteknar, þ.e. flestar málstofurnar eru bæði fyrir og eftir hádegi. Þetta er gert til að gera leikskólum sem ekki eru með skipulagsdag, kleift að leyfa starfsfólki að taka þátt. Þannig geta fleiri notið þess sem er í boði. Meira hér

______________________________

Eldra efni

Aðalfundur SARE

Verður haldinn þann 21. desember í Hugmyndahúsi háskólanna, kl 15.15. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.

Eftir að aðalfundi lýkur verður efnisveita SARE formlega opnuð á sama stað.

SARE hefur bætt við flipa merktum Reggio Children á heimasíðuna, undir honum er efni, texti og myndir  sem Reggio Children senda okkur.

SARE hefur sett upp samskiptasíðu http://sareis.ning.com/  Forsíðuna geta allir séð en til að nota síðuna og taka þátt í umræðuhópum verður fólk að skrá sig. 

Skólaþróunardagur SARE verður 26, febrúar 2010 í leikskólanum Stekkjarási í Hafnarfirði. Það væri gott ef skólar færu að huga að erindum á Skólaþróunardaginn. Markmiðið er að allir skólar flyti am.k. eina kynningu.  

 
Heimsækja SARE

Minnum skóla á að senda inn efni í málstofur

Nú fer hver leikskóli að verða síðastur að senda undirbúningsnefnd SARE skólaþróunardagsins það sem þeir vilja fjalla um á málstofum. SARE skólaþróunradagurinn byggist á því að allir sem leggi sitt að mörkum. Að við séum öll bæði gefendur og þiggjendur. Skólaþróunardagurinn verður þann 26. febrúar. Að sjálfsögðu að því tilskyldu að nóg berist af efni.

sarebori.jpg

Ýmsar fréttir

Vea Vecchi hefur án efa haft gríðarleg áhrif á starfið í leikskólaunum Reggio Emilia en hún hefur leitt þróun listrænnarnálgunar við starfið þar í yfir 40 ár. Nýlega kom út bók eftir hana á vegum Routledge í London. Þetta er í fyrsta sinn sem ýtarleg skrif um hugmyndafræðilega þróun listrænnar nálgunnar við starfið í Reggio Emilia kemur út.

Út er komin bókin Börn geta meira en við höldum: Uppeldisfræðilegar skráningar - hvernig læra leikskólabörn. Höfundar eru Anna Friðriksdóttir, Edda Valsdóttir og Ingibjörg Erla Björnsdóttir. Bókin fjallar um verkefni sem spratt frá áhuga barnanna í leikskólanum Fögrubrekku á hvað gera mætti við hringlaga taubúta. Úr varð þemaverkefni sem náði yfir heilan vetur. Verkefni þar sem börnin saumuðu bæði kjól og teppi.

Bókin er vel úr garði gerð og lýsir hvernig með uppeldisfræðilegum skráningum hægt er að nálgast nám barna og hvernig leikskólakennarar geta nýtt þær til að þróa starfshætti sína. Bókin kostar 5000 þúsund krónur og er hægt að nálgast hana í leikskólanum Fögrubrekku í Kópavogi.  

Næsta sumar (júlí) verður boðið upp á tveggja vikna námsstefnu í Reggio Emilia, áhugasömum er bent á heimasíðu verkefnisins HÉR.

Ráðstefnur á vegum bandarísku samtakanna NAREA í haust (tengill hér)

Hugmyndafræði endurnýtanlegra innkaupapoka

Á heimasíðu Reggio Institutet í Stokkhólmi eru upplýsingar um námskeið á döfinni hjá þeim.

Heimasíða Reggio Children.

 


Keyri á Vefstjórinn Live